Fréttir

true

Leikjum ÍA og Skallagríms í kvöld frestað vegna veðurs

Í kvöld áttu að fara fram tveir leikir í 1. deild karla í körfuknattleik hjá Vesturlandsliðunum en hefur þeim báðum verið frestað vegna slæmra veðurskilyrða. Fram kemur á FB síðu Skallagríms að leikur þeirra við Þrótt Vogum verður í Fjósinu í Borgarnesi á morgun og hefst klukkan 16. Á FB síðu ÍA kemur fram að…Lesa meira

true

Brekkubraut neðri breytt í botnlangagötu vegna framkvæmda

Gatan Brekkubraut á Akranesi verður botnlangagata tímabundið á næstunni vegna framkvæmda. Veitur eru að fara í að afleggja hitaveitubrunna sem eru orðnir verulega hættulegir. Um er að ræða tvo brunna, sem eru á þessum kafla sem teknir verða í tvennu lagi (háð veðri), frá 5. febrúar til 16. febrúar. Verkið skiptist upp í tvær vikur.…Lesa meira

true

Höllin, nýtt hús Félags eldri borgara, vígð í Ólafsvík – Myndasyrpa

Síðdegis í gær var nýtt hús Félags eldri borgara í Snæfellsbæ formlega opnað og því gefið nafnið Höllin. Fram fór nafnasamkeppni á síðasta ári og varð Höllin fyrir valinu. Hugmyndin að nafninu var undir nafnleynd þannig að ekki liggur fyrir hver lagði það til. Húsið er við Ólafsbraut 23 í Ólafsvík en það var reist…Lesa meira

true

Skoðuðu nýja byggð vestan Borgarvogs í kúrs um mannvirki í landslagi

Núna á vorönn eru nemendur í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands að vinna verkefni í Borgarnesi. Það er liður í námskeiðinu Mannvirki í landslagi. „Á þessu námskeiði langaði okkur til að fá að borðinu landslagsarkitekt frá Rúmeníu sem við þekkjum til og hefur unnið til fjölda verðlauna í sínu heimalandi. Ana Horhat kemur frá Cluj-Napoca í…Lesa meira

true

Skjar1.is sýnir að nýju línulega dagskrá

“Mig langar að koma á framfæri við lesendur Skessuhorns að Sjónvarpsstöðin Skjár 1 hefur hafið útsendingar aftur og er um línulega dagskrá um að ræða sem dreift er um vefspilara hér: www.skjar1.is og er dagskráin opin og án endurgjalds,“ segir í tilkynningu frá Hólmgeiri Baldurssyni.Lesa meira

true

Björgvin Þór og Jóna Margrét í undanúrslitum í Idol í kvöld

Fjórði og næstsíðasti þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fer fram í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni. Hann verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19 og stendur til rúmlega níu. Í þættinum í kvöld flytur hver keppandi tvö lög, eitt ástarlag og eitt lag sem dómararnir hafa valið fyrir þau. Fjórir keppendur standa nú…Lesa meira

true

Undirbúa stofnun Félags eldri borgara í Hvalfjarðarsveit

Félag eldri borgara í Hvalfjarðarsveit (FEBHV) verður stofnað 11. febrúar næstkomandi. Að undirbúningi standa þau Anna G. Torfadóttir á Hagamel, Áskell Þórisson á Ægissíðu og Jóhanna Harðardóttir í Hlésey. „Félagið mun vinna að málefnum eldri borgara svo sem félagsmálum, aðstöðumálum, fræðslu og hvers kyns mannrækt í samræmi við áherslur Landsambands eldri borgara; LEB. Stofnfundur verður…Lesa meira

true

Vilja fjarlægja séra Friðrik af heiðursborgaralista

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 25. janúar lagði ráðið, í ljósi yfirlýsingar KFUM og KFUK og upplýsinga sem þar koma fram, til við bæjarstjórn Akraness að nafn séra Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM og -K, verði fjarlægt af lista yfir heiðursborgara á Akranesi en þann titil veitti bæjarstjórn Akraness honum árið 1947 í tilefni þess að…Lesa meira

true

Skiptimarkaður í Safnahúsinu á öskudagsbúningum

Frá og með laugardeginum 3. febrúar og fram til öskudagsins 14. febrúar verður skiptimarkaður með grímubúninga í Safnahúsi Borgarfjarðar á opnunartíma þess. Hægt er að koma með búninga sem þurfa nýja eigendur og finna sér aðra búninga og furðuföt í staðinn. Opið er alla virka daga frá klukkan 10-17 og á laugardögum frá klukkan 11-14.Lesa meira

true

Vaxandi líkur á eldgosi á Reykjanesi

Líkön sem byggja á GPS gögnum, sem farið var yfir á fundi í gær með vísindafólki frá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands, sýna að nú hafa um það bil 6,5 milljón rúmmetrar flætt inn í kvikuhólfið kennt við Svartsengi. „Miðað við þetta mat er líklegt að kvikumagnið nái svipuðu rúmmáli og fyrir eldgosið 14. janúar…Lesa meira