
Brekkubraut neðri breytt í botnlangagötu vegna framkvæmda
Gatan Brekkubraut á Akranesi verður botnlangagata tímabundið á næstunni vegna framkvæmda. Veitur eru að fara í að afleggja hitaveitubrunna sem eru orðnir verulega hættulegir. Um er að ræða tvo brunna, sem eru á þessum kafla sem teknir verða í tvennu lagi (háð veðri), frá 5. febrúar til 16. febrúar.
Verkið skiptist upp í tvær vikur. Í fyrri vikunni lokast gatan alveg en í þeirri seinni verður reynt að gera aðra akreinina færa, samt með fyrirvara um að loka alveg vegna athafnasvæðis tækja. Lokanirnar eiga við um neðri hluta Brekkubrautar eða Brekkubraut 1-13.