Nemendur höfðu til skoðunar nýtingu svæðisins vestan við Borgarvog sem Borgarbyggð skoðar nú sem framtíðar byggingarland. Ljósm. mm

Skoðuðu nýja byggð vestan Borgarvogs í kúrs um mannvirki í landslagi

Núna á vorönn eru nemendur í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands að vinna verkefni í Borgarnesi. Það er liður í námskeiðinu Mannvirki í landslagi. „Á þessu námskeiði langaði okkur til að fá að borðinu landslagsarkitekt frá Rúmeníu sem við þekkjum til og hefur unnið til fjölda verðlauna í sínu heimalandi. Ana Horhat kemur frá Cluj-Napoca í Transilvaníu, er með doktorsgráðu í landslagsarkitektúr frá Ítalíu og rekur eigin stofu í heimalandinu,“ segir Hermann Georg Gunnlaugsson námsbrautarstjóri. LbhÍ og námsbrautin í landslagsarkitektúr hefur lagt sig fram um að draga að náminu og verkefnum nemenda bæði innlenda og erlenda einstaklinga sem koma ýmist úr kennslu eða eru starfandi í faginum.

Skoðuðu nýja byggð vestan Borgarvogs í kúrs um mannvirki í landslagi - Skessuhorn