
Leikjum ÍA og Skallagríms í kvöld frestað vegna veðurs
Í kvöld áttu að fara fram tveir leikir í 1. deild karla í körfuknattleik hjá Vesturlandsliðunum en hefur þeim báðum verið frestað vegna slæmra veðurskilyrða.
Fram kemur á FB síðu Skallagríms að leikur þeirra við Þrótt Vogum verður í Fjósinu í Borgarnesi á morgun og hefst klukkan 16.
Á FB síðu ÍA kemur fram að leikur ÍA og Snæfells hafi verið frestað en ekki er kominn nýr tími á leikinn og ný tímasetning verði uppfærð eins fljótt og auðið er.