
Vaxandi líkur á eldgosi á Reykjanesi
Líkön sem byggja á GPS gögnum, sem farið var yfir á fundi í gær með vísindafólki frá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands, sýna að nú hafa um það bil 6,5 milljón rúmmetrar flætt inn í kvikuhólfið kennt við Svartsengi. „Miðað við þetta mat er líklegt að kvikumagnið nái svipuðu rúmmáli og fyrir eldgosið 14. janúar á næstu tveimur vikum og jafnvel dögum. Þetta þýðir að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi hafi aukist,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.
Ekki er víst að fyrirvarinn á eldgosi verði eins langur og þegar síðast gaus, en þá var um fimm klukkustunda fyrirvari frá því jarðskjálftahrina byrjaði þangað til að eldgos hófst rétt sunnan Hagafells. Fyrirvarinn fyrir eldgosið milli Stóra-Skógfells og Sundhnúks þann 18. desember síðastliðinn var um 90 mínútur, en það gos kom upp um það bil við miðjan kvikuganginn. „Við endurtekin kvikuhlaup er líklegt að leiðin fyrir kvikuna verði greiðari og því fylgir minni jarðskjálftavirkni. Kvikuhlaupum fylgir þó alltaf aukinn smáskjálftavirkni og er líklegast að fyrirvari verði í það minnsta ein klukkustund í aðdraganda eldgoss sem lang líklegast mun rata í farveg kvikugangsins sem myndaðist 10. nóvember síðastliðinn.“
Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort. Helstu breytingar eru þær að svæði 3 (Sýlingarfell – Hagafell) fer upp í rautt (mikil hætta), svæði 2 og 6 fara upp í appelsínugult (töluverð hætta). Grindavík helst óbreytt (svæði 4), sjá mynd.