
Dómnefndin. Ljósmyndir: Vísir.is
Björgvin Þór og Jóna Margrét í undanúrslitum í Idol í kvöld
Fjórði og næstsíðasti þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fer fram í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni. Hann verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19 og stendur til rúmlega níu. Í þættinum í kvöld flytur hver keppandi tvö lög, eitt ástarlag og eitt lag sem dómararnir hafa valið fyrir þau.