
Séra Ægir Örn Sveinsson fór með húsbæn áður en klippt var á borða og húsið vígt. Texti og myndir: Alfons Finnsson
Höllin, nýtt hús Félags eldri borgara, vígð í Ólafsvík – Myndasyrpa
Síðdegis í gær var nýtt hús Félags eldri borgara í Snæfellsbæ formlega opnað og því gefið nafnið Höllin. Fram fór nafnasamkeppni á síðasta ári og varð Höllin fyrir valinu. Hugmyndin að nafninu var undir nafnleynd þannig að ekki liggur fyrir hver lagði það til. Húsið er við Ólafsbraut 23 í Ólafsvík en það var reist úr húseiningum sem sveitarfélagið keypti notaðar en þær höfðu áður þjónað sem skólabygging Hjallastefnunnar. Óhætt er að segja að húsið sé hið glæsilegasta og getur Félag eldri borgara nú haft mest af hinni blómlegu starfsemi undir einu þaki. Þó kom fram að spilakvöld verða áfram í Klifi. Um 200 gestir mættu í Höllina og komu gestir víðs vegar af Snæfellsnesi til að fagna með Félagi eldri borgara við þessi tímamót.