Fréttir

true

Varphænsnahald í búrum hefur runnið sitt skeið hér á landi

Um mitt síðasta ár tók gildi bann við varphænsnahaldi í hefðbundnum búrum hér á landi. Í úttektum Matvælastofnunar á eggjabúum í haust kom í ljós að varphænur voru enn í búrum á tveimur stöðum. Eigendur þessara fugla brugðust við kröfum Matvælastofnunar um að hætta notkun búranna og síðustu hænur voru fjarlægðar úr þeim í desember…Lesa meira

true

Gul viðvörun tekur gildi og er til miðnættis

Í dag mun lægð ganga yfir landið og er gul veðurviðvörun fyrir allt sunnan- og vestanvert landið, að Vestfjörðum undanskildum. Það verður suðvestan 13-23 m/s með éljum og kólnandi veðri, hvassast sunnan- og vestanlands. Styttir að mestu upp á norðaustanverðu landinu eftir hádegi. Frost 0 til 6 stig í kvöld. Á spásvæðinu við Faxaflóa er…Lesa meira

true

Kjarnorkusprengjur nýttar til að aldursgreina langreyðar

Ný rannsókn sem Dr. Guðjón Már Sigurðsson sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun er höfundur að, ásamt Sigríði Völu Finnsdóttur og Steven E. Campana, sýnir fram á með óyggjandi hætti að hægt er að nota geislakolefni frá kjarnorkusprengjum til að staðfesta aldur langreyða. Ekki nóg með að það sé óvenjulegt að nýta kjarnorkusprengjur í þessum tilgangi, þá er…Lesa meira

true

Íþróttamaður vikunnar er yfirleitt alltaf í stuði

Í þessum lið leggjum við fyrir tíu spurningar til íþróttamanna úr alls konar íþróttum á öllum aldri á Vesturlandi. Íþróttamaður vikunnar að þessu sinni er Baldur frá Búðardal en hann stundar knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Nafn: Baldur Valbergsson Fjölskylduhagir? Ég bý heima hjá foreldrum mínum og stóra bróður. Hver eru þín helstu áhugamál? Fótbolti og…Lesa meira

true

Dalabyggð gerir samning við Ólaf pá

Á sveitarstjórnarfundi Dalabyggðar þann 18. janúar var samþykktur samningur við Ungmennafélagið Ólaf pá um afnot elli- og örorkulífeyrisþega af líkamsræktarstöð félagsins að Vesturbraut 8 í Búðardal. Regluleg hreyfing er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Rannsóknir sýna að reglubundin líkamsrækt við hæfi styður við aukna virkni og árangur í endurhæfingu. Þá er líkamsþjálfun…Lesa meira

true

Eitt ár frá fyrsta ljósmyndafundi á Höfða

Ljósmyndasafn Akraness heldur vikulega ljósmyndafundi á Dvalarheimilinu Höfða og núna í janúar er ár síðan fyrsti fundurinn var haldinn. Fundirnir eru haldnir einu sinni í viku af Héraðsskjalaverði Akraneskaupstaðar, Erlu Dís Sigurjónsdóttur, í samvinnu við starfsfólk í dagdvöl. Á fundina mæta íbúar Höfða, fólk í dagdvöl, gestir og starfsfólk. Á hverjum fundi eru sýndar ljósmyndir…Lesa meira

true

Leggja til friðlýsingu Borgarneskirkju

Minjastofnun hefur ákveðið að leggja til við umhverfisráðherra að Borgarneskirkja verði friðlýst. Tillagan var lögð fyrir fund Húsafriðunarnefndar í desember og samþykkt þar. Vísað er til lagagreinar um menningarminjar sem segir að friðlýsa megi hús og mannvirki eða hluta þeirra, ef þau hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Borgarneskirkja var hönnuð og byggð á árunum…Lesa meira

true

Aldrei fleiri látist í umferðinni

Aldrei hafa jafn margir látist í umferðarslysum á einum mánuði og nú í nýliðnum janúar. Hjón létust í umferðarslysi á Grindavíkurvegi 5. janúar. Tveir erlendir ferðamenn létust í umferðarslysi á þjóðveginum við Skaftafell 12. janúar. Einn lést í slysi á Vesturlandsvegi, skammt frá gatnamótum við Hvalfjarðarveg, 17. janúar. Einn lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við…Lesa meira

true

Vegagerðin bendir á hláku í dag og sviptingar í fyrramálið

Smám saman hlýnar í veðri í dag með tilheyrandi leysingum. Vegagerðin bendir á að við þær aðstæður verður flughált á sumum vegum, ekkí síst á Suður- og Vesturlandi. „Sviptingar eru í veðrinu og í fyrramálið má gera ráð fyrir hvassri suðvestan átt og hríðarveðri á fjallvegum eins og Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Öxnadalsheiði. Stendur fram á…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á hluta Akraness í kvöld

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vegna viðgerða verður heitavatnslaust á hluta gamla bæjarins á Akranesi í kvöld, fimmtudaginn 1. febrúar frá klukkan 18 til 20. Svæðið sem um ræðir er: Skólabraut 16-30 og 17-37, Kirkjubraut 1-25 og 2-32, Melteigur 4-18 og 21, Suðurgata 47A-71, Laugarbraut 3-27 og 6-20, Víðigerði 2 og 1-3, Heiðargerði…Lesa meira