
Heitavatnslaust á hluta Akraness í kvöld
Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vegna viðgerða verður heitavatnslaust á hluta gamla bæjarins á Akranesi í kvöld, fimmtudaginn 1. febrúar frá klukkan 18 til 20. Svæðið sem um ræðir er: Skólabraut 16-30 og 17-37, Kirkjubraut 1-25 og 2-32, Melteigur 4-18 og 21, Suðurgata 47A-71, Laugarbraut 3-27 og 6-20, Víðigerði 2 og 1-3, Heiðargerði 3-21 og 6-24 og Akurgerði 2-19 og 1-22.
„Við biðjumst velvirðingar á óhjákvæmilegum óþægindum,“ segir í tilkynningu og bætt við að í kuldatíð er mælt með að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur. „Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum.“