
Varphænsnahald í búrum hefur runnið sitt skeið hér á landi
Um mitt síðasta ár tók gildi bann við varphænsnahaldi í hefðbundnum búrum hér á landi. Í úttektum Matvælastofnunar á eggjabúum í haust kom í ljós að varphænur voru enn í búrum á tveimur stöðum. Eigendur þessara fugla brugðust við kröfum Matvælastofnunar um að hætta notkun búranna og síðustu hænur voru fjarlægðar úr þeim í desember síðastliðnum. Matvælastofnun getur því upplýst að hænsnahald í hefðbundnum búrum hér á landi hefur lagst af.