Gul viðvörun tekur gildi og er til miðnættis

Í dag mun lægð ganga yfir landið og er gul veðurviðvörun fyrir allt sunnan- og vestanvert landið, að Vestfjörðum undanskildum. Það verður suðvestan 13-23 m/s með éljum og kólnandi veðri, hvassast sunnan- og vestanlands. Styttir að mestu upp á norðaustanverðu landinu eftir hádegi. Frost 0 til 6 stig í kvöld.

Á spásvæðinu við Faxaflóa er gert ráð fyrir suðvestan 15-23 m/s og dimmum éljum. Viðvörun er í gildi frá klukkan 11 í dag og til miðnættis. Búast má við éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Á spásvæðinu Breiðafirði verður suðvestan 13-20 m/s og dimm él, hvassast á Snæfellsnesi. Viðvörun hefur tekið gildi og gildir til miðnættis í kvöld. Búast má við éljagangi með skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Óvissustig á vegum

Vegagerðin hefur gefið út að vegir hafa verið settir á óvissustig og getur komið til lokana með litlum eða engum fyrirvara. Hér á Vesturlandi á það við um Hafnarfjall frá kl. 10:00 til klukkan 7 í fyrramálið, 3. febrúar, en einnig á sama tíma um leiðirnar um Hvalfjörð, Akrafjallshring, Borgarfjörð og Mýrar. Þa er einnig óvissustig frá kl. 10:00 í dag. til kl. 7:00 laugardaginn 3. febrúar.

Gul viðvörun tekur gildi og er til miðnættis - Skessuhorn