
Frá ljósmyndafundi á Höfða. Ljósm. akranes.is
Eitt ár frá fyrsta ljósmyndafundi á Höfða
Ljósmyndasafn Akraness heldur vikulega ljósmyndafundi á Dvalarheimilinu Höfða og núna í janúar er ár síðan fyrsti fundurinn var haldinn. Fundirnir eru haldnir einu sinni í viku af Héraðsskjalaverði Akraneskaupstaðar, Erlu Dís Sigurjónsdóttur, í samvinnu við starfsfólk í dagdvöl. Á fundina mæta íbúar Höfða, fólk í dagdvöl, gestir og starfsfólk.