Kjarnorkusprengjur eru sjaldnast taldar af hinu góða en þó má nota þær til að aldurgreina skíðishvali. Myndin er samsett.

Kjarnorkusprengjur nýttar til að aldursgreina langreyðar

Ný rannsókn sem Dr. Guðjón Már Sigurðsson sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun er höfundur að, ásamt Sigríði Völu Finnsdóttur og Steven E. Campana, sýnir fram á með óyggjandi hætti að hægt er að nota geislakolefni frá kjarnorkusprengjum til að staðfesta aldur langreyða. Ekki nóg með að það sé óvenjulegt að nýta kjarnorkusprengjur í þessum tilgangi, þá er það einnig óhefðbundið að eyrnamergur hvalanna er mældur en það er hann sem staðfestir aldur hvalanna.

Kjarnorkusprengjur nýttar til að aldursgreina langreyðar - Skessuhorn