Fréttir

true

Ræddu helstu áskoranir í orkumálum landsmanna

„Verðum að gera betur – staða og áskoranir í raforkumálum,“ var yfirskrift fundar sem Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hélt á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Frummælendur voru Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs á Akranesi, Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss, Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem Ísland og Teitur Björn Einarsson alþingismaður. Öll nálguðust þau umræðuefnið út frá ólíkum vinklum, en voru með…Lesa meira

true

Móðir og hrútlamb í Vífilsdal greind með ARR genasamsætuna

Staðfest hefur verið að ARR genasamsætan, sem hefur verndandi áhrif gegn riðuveiki, hefur nú fundist í gripum sem óskildir eru Þernunesfénu. Á bænum Vífilsdal í Hörðudal í Dalasýslu greindist ARR í hrútlambi í haust sem á ekki foreldra sem vitað var að bæru ARR. Í framhaldinu var greint sýni úr móðir hrútsins og reyndist hún…Lesa meira

true

Búast við ófærð á fjallvegum seint í kvöld

Seint í kvöld, eða um það leyti sem þjónustutíma Vegagerðarinnar lýkur úti um landið, er reiknað með að það hvessi af suðvestri. Þá verður skafrenningur og blint mjög víða á heiðum og fjallvegum. „Líklegt er að margir vegir verði þungfærir eða ófærir af þeim sökum í nótt,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Magnús heimsótti Grunnskólann í Borgarnesi

Magnús Scheving frumkvöðull og athafnamaður heimsótti krakkana á unglingastigi í Grunnskólanum í Borgarnesi í liðinni viku og var með nýsköpunar- og frumkvöðlafræðslu fyrir börnin. Þar fór hann yfir þau skref sem þarf að taka þegar maður vill framkvæma góða hugmynd þannig að hún verði að frambærilegri vöru. Þá tók hann meðal annars fram að það…Lesa meira

true

Hvanneyrar pistlar Bjarna aðgengilegir í rithlöðu

Hvanneyri í Borgarfirði er vel þekktur skólastaður. Að stofni til byggðarhverfi, sveitaþorp, með aldagamlar rætur. Það breyttist fyrir einni öld og þriðjungi betur þegar þar var settur búnaðarskóli með tilheyrandi skólabúi. Í dag er Hvanneyri þéttbýli í sveit, raunar háskólaþorp, fjölbreytt að gerð og mannlífi, og með langa sögu. Nokkurn hluta sögu Hvanneyrar hefur dr.…Lesa meira

true

Bónstöð Akraness er tekin til starfa

Um miðjan janúar opnaði Bónstöð Akraness á Kalmansvöllum 3 þar sem boðið er upp á hágæða þrif á bifreiðum. Þar ræður ríkjum Skagamaðurinn Oliver Stefánsson sem knattspyrnuáhugamenn þekkja vafalaust en hann lék með yngri flokkum ÍA áður en hann samdi við sænska úrvalsdeildarliðið Norrköping árið 2018, þá 16 ára gamall. Oliver spilaði með Breiðabliki á…Lesa meira

true

Bóndadagskaffi í boði á Akraseli og Garðaseli – myndasyrpa

Í tilefni bóndadagsins var öllum pöbbum, öfum og öðrum karlmönnum í lífi barnanna á leikskólunum Akraseli og Garðaseli á Akranesi boðið í bóndadagskaffi á föstudagsmorguninn á milli kl. 8 og 10. Þar var boðið upp á kaffi og nýbakað brauð auk þess sem hægt var að gæða sér á hákarli. Pabbar og afar létu sig…Lesa meira

true

Björgvin Þór og Jóna Margrét í Idolinu í kvöld

Þriðji þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fer fram í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni. Hann verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19 og stendur til rúmlega níu. Þema kvöldsins í þættinum er Hollywood og spreyta þátttakendur sig á lögum úr bandarískum bíómyndum. Sex keppendur standa nú eftir og keppast um það að verða…Lesa meira

true

Ellefu tilboð bárust í gerð nýrrar urðunarreinar í Fíflholtum

Í dag verður undirritaður verksamningur milli Sorpurðunar Vesturlands hf. og Óskataks ehf. í Kópavogi um jarðvinnu verk sem ber nafnið ,,Fíflholt stækkun – Rein 5.“ Verkið var boðið út í nóvember á síðasta ári og voru tilboð opnuð 8. desember. Alls buðu ellefu fyrirtæki í verkið og var einungis eitt þeirra hærra en leiðrétt kostnaðaráætlun…Lesa meira

true

Hvalur hf. krefst skaðabóta vegna stórfellds tekjumissis

Hvalur hf. hefur sent ríkislögmanni bréf með kröfu á hendur íslenska ríkinu. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greindi frá. Þar segir að fyrirtækið fari meðal annars fram á að ríkissjóður greiði starfsmönnum þess laun fyrir það tímabil sem bann á hvalveiðum var í gildi, eða frá því 20. júní til loka ágúst í sumar. Í byrjun september voru…Lesa meira