
Frummælendur voru Elliði Vignisson, Líf Lárusdóttir, Teitur Björn Einarsson og Álfheiður Ágústsdóttir. Ljósmyndir: mm
Ræddu helstu áskoranir í orkumálum landsmanna
„Verðum að gera betur – staða og áskoranir í raforkumálum,“ var yfirskrift fundar sem Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hélt á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Frummælendur voru Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs á Akranesi, Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss, Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem Ísland og Teitur Björn Einarsson alþingismaður. Öll nálguðust þau umræðuefnið út frá ólíkum vinklum, en voru með skýr skilaboð um að landsmenn verða að gera betur í að afla og dreifa orku til að atvinnulífið geti haldið áfram að vaxa.