Bóndadagskaffi í boði á Akraseli og Garðaseli – myndasyrpa

Í tilefni bóndadagsins var öllum pöbbum, öfum og öðrum karlmönnum í lífi barnanna á leikskólunum Akraseli og Garðaseli á Akranesi boðið í bóndadagskaffi á föstudagsmorguninn á milli kl. 8 og 10. Þar var boðið upp á kaffi og nýbakað brauð auk þess sem hægt var að gæða sér á hákarli. Pabbar og afar létu sig ekki vanta á viðburðinn, bílastæðin við leikskólana fylltust og menn þurftu að leggja bílunum sínum í nálægum húsagötum. Börnin voru afar spennt að fá þessa heimsókn og fóru með sína menn út um allt til að sýna þeim leikskólann sinn.

Bóndadagskaffi í boði á Akraseli og Garðaseli - myndasyrpa - Skessuhorn