
Oliver Stefánsson, eigandi Bónstöðvar Akraness. Ljósm. vaks
Bónstöð Akraness er tekin til starfa
Um miðjan janúar opnaði Bónstöð Akraness á Kalmansvöllum 3 þar sem boðið er upp á hágæða þrif á bifreiðum. Þar ræður ríkjum Skagamaðurinn Oliver Stefánsson sem knattspyrnuáhugamenn þekkja vafalaust en hann lék með yngri flokkum ÍA áður en hann samdi við sænska úrvalsdeildarliðið Norrköping árið 2018, þá 16 ára gamall. Oliver spilaði með Breiðabliki á síðasta tímabili en gekk til liðs við ÍA eftir tímabilið og leikur með þeim í Bestu deildinni í sumar.