
Hörður Hjartarson bóndi í fjárhúsunum. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ þá
Móðir og hrútlamb í Vífilsdal greind með ARR genasamsætuna
Staðfest hefur verið að ARR genasamsætan, sem hefur verndandi áhrif gegn riðuveiki, hefur nú fundist í gripum sem óskildir eru Þernunesfénu. Á bænum Vífilsdal í Hörðudal í Dalasýslu greindist ARR í hrútlambi í haust sem á ekki foreldra sem vitað var að bæru ARR. Í framhaldinu var greint sýni úr móðir hrútsins og reyndist hún einnig bera ARR. Nú er búið að tvígreina bæði hrútinn og móður hans og því ljóst að fundin er ný ættarlína sem ber þennan verndandi breytileika. Frá þessu var greint á vefsíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins síðastliðinn föstudag en ljóst er að þarna eru á ferð stór tíðindi í baráttu sauðfjárbænda gegn riðu.