Mynd frá fyrirlestrinum. Ljósm. FB síða GB

Magnús heimsótti Grunnskólann í Borgarnesi

Magnús Scheving frumkvöðull og athafnamaður heimsótti krakkana á unglingastigi í Grunnskólanum í Borgarnesi í liðinni viku og var með nýsköpunar- og frumkvöðlafræðslu fyrir börnin. Þar fór hann yfir þau skref sem þarf að taka þegar maður vill framkvæma góða hugmynd þannig að hún verði að frambærilegri vöru. Þá tók hann meðal annars fram að það dugir ekki að hanga í símanum allan daginn og láta hann mata sig af skjáefni heldur þarf að rísa upp og gera hlutina sjálfur. Þá skiptir líka máli hvernig framkoma þeirra er og birtingarmynd þegar þau vilja koma sér á framfæri, sem á einnig við um þegar þau sækja um draumastarfið.

Magnús heimsótti Grunnskólann í Borgarnesi - Skessuhorn