Fréttir

true

Skoða viðhald á ytra byrði Akraneshallar

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar á mánudaginn fóru Ásbjörn Egilsson verkefnastjóri á umhverfis- og skipulagssviði og Lárus Ársælsson hjá Mannviti yfir valkosti vegna viðhalds á ytra byrði Akraneshallar en þak hallarinnar hefur ryðgað talsvert á undanförnum árum. Tveir valkostir hafa verið skoðaðir. Annars vegar er um að ræða hefðbundið viðhald á ytra byrði þar…Lesa meira

true

Kvenfélög í Borgarbyggð styrkja Kviku

Síðastliðinn mánudag var kvenfélagskonum úr Borgarfirði, Borgarnesi og af Mýrum boðið í heimsókn í Menntaskóla Borgarfjarðar. Kvenfélagskonurnar fengu þar kynningu á starfsemi skólans og sérstaklega á starfsemi Kviku, skapandi rýmis. Ástæða heimboðsins var sú að kvenfélögin höfðu veitt vilyrði fyrir að styrkja starfsemi Kviku og voru styrkirnir afhentir við þetta tækifæri. Það var Samband borgfirskra…Lesa meira

true

Bogfimiæfingar hafnar á Reykhólum

Í Reykhólahreppi hefur undanfarið vaknað töluverður áhugi á bogfimi. Miðvikudaginn 15. mars síðastliðinn komu í heimsókn þau Guðmundur Guðjónsson og Valgerður Einarsdóttir Hjaltested frá Bogfimisambandi Íslands og voru þau að kenna undirstöðuatriði í bogfimi og meðferð og umhirðan búnaðarins. Stefnan er að allir sem hafa áhuga á bogfimi geti mætt á vikulegar æfingar í greininni…Lesa meira

true

Hekluðu ungbarnateppi úr afgangsgarni

Starfsfólki Grunnskóla Snæfellsbæjar áskotnaðist töluvert magn af afgangsgarni fyrir nokkru. Í framhaldi af því tók hluti starfsfólksins sig saman og heklaði ungbarnateppi úr garninu. Hugmyndin með því að velja ungbarnateppi var að geta lagt þeim lið sem minna mega sín og heklaði hópurinn sjö teppi. Á sama tíma og verið var að leggja lokahönd á…Lesa meira

true

Alþjóðadagur vatnsins er í dag

Í dag, 22. mars, er alþjóðlegur dagur vatnsins sem ætlaður er til að minna okkur á mikilvægi vatns fyrir okkur og allt líf á jörðinni. Vatn er lífsnauðsynlegt öllum og flestir kannast einnig við róandi og heilandi áhrif þess að sitja á lækjarbakka eða við strönd og fylgjast með hreyfingum vatnsins og hlusta á árniðinn,…Lesa meira

true

Mygla í húsi leiðir til þess að ungmennabúðum UMFÍ hefur verið hætt

Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að hætta starfsemi Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni. Forsaga málsins er sú að starfsemi Ungmennabúðanna var hætt tímabundið um miðjan febrúar síðastliðinn vegna myglu og rakaskemmda í fyrrum húsi Íþróttakennaraskólans. Í kjölfarið upplýsti Bláskógabyggð, eigandi hússins, UMFÍ um að sveitarfélagið hygðist ekki fara í þær framkvæmdir á húsinu sem nauðsynlegar eru til…Lesa meira

true

Þiggja þátttöku í fræðsluferð til Noregs til að kynna sér nýtingu vindorku

„Hagnýting vindorku,- fræðslu- og kynnisferð,“ er yfirskrift Noregsferðar sem stefnt er að í lok apríl fyrir sveitarstjórnarfólk hér á landi. Það er sendiráð Íslands í Noregi sem stendur fyrir skipulagningu ferðarinnar ásamt Grænvangi, en það er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Hlutverk Grænvangs er m.a. að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og…Lesa meira

true

Framkvæmdir ganga vel á Höfða

Blaðamaður Skessuhorns leit á dögunum við á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili við Sólmundarhöfða á Akranesi. Í mars á síðasta ári hófst þar fyrsti áfangi við endurbætur og framkvæmdir á heimilinu og er endurbótunum skipt upp í fjóra áfanga á framkvæmdatímanum. Lokið er við endurbætur á tveimur áföngum. Nú eru í gangi framkvæmdir á heimilinu Jaðri,…Lesa meira

true

100 ár frá fæðingu Bærings Cecilssonar

Föstudaginn 24. mars næstkomandi verða 100 ár frá fæðingu Bærings Cecilssonar, ljósmyndara. Af því tilefni verður opið hús í Bæringsstofu í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði klukkan 17.30 þar sem minningu og myndum Bærings verða gerð skil. Bæring Cecilsson (1923-2002) var fæddur að Búðum í Eyrarsveit, við norðanvert Kirkjufell. Hann tók ógrynni ljósmynda af náttúru og mannlífi…Lesa meira

true

Svavar Knútur í Brákarhlíð og Söguloftinu

Svavar Knútur söngvaskáld býður til kvöldvöku á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi föstudagskvöldið 24. mars kl. 20. Fyrr um daginn mun hann koma við á Brákarhlíð og syngja fyrir íbúa og starfsfólk, án endurgjalds. Á boðstólum á kvöldvökunni á Söguloftinu verður blönduð dagskrá af frumsaminni tónlist, sígildum íslenskum sönglögum, sögum og dassi af vangaveltum eins og…Lesa meira