Fréttir

true

Húsbíll fauk út af

Töluvert rok var í morgun um vestanvert landið. Ferðamenn á bílaleiguhúsbíl lentu í hremmingum á Kaldármelum á Snæfellsnesi. Fengu þeir vindhviðu á sig með þeim afleiðingum að bíllinn fauk á hliðina utan vegar. Ekki urðu slys á fólki en bíllinn er mikið skemmdur.Lesa meira

true

Bílvelta á Akrafjallsvegi í gærkvöldi

Um kvöldmatarleytið í gær var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um bílveltu á Akrafjallsvegi, á móts við Vestra-Reyni. Ökumaður hafði misst stjórn á bifreið sinni þegar hann fékk vindhviðu á sig og fór út af hægra megin á veginum. Framendi bifreiðarinnar lenti í moldarbarði við skurð, bíllinn kastaðist einn hring í loftinu og hafnaði hinum…Lesa meira

true

Slys á gönguleiðinni að Glymi

Björgunarsveitir í Borgarfirði og Akranesi hafa verið ræstar út á hæsta forgangi til björgunaraðgerða við fossinn Glym í Hvalfirði. Þar varð slys á ellefta tímanum í morgun þegar einstaklingur sem staddur var ofarlega á gönguleiðinni að fossinum féll niður. Sérstaklega er kallað eftir fólki til fjallabjörgunar og straumvatnsbjörgunar. Glymur kemur úr Botnsá og er hæsti…Lesa meira

true

Tólfta stýrivaxtahækkunin í röð

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun hækkun stýrivaxta um eitt prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, hækka því úr 6,5% í 7,5%. Þetta er tólfta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. „Verðbólguþrýstingur heldur áfram að aukast og verðhækkanir ná til æ fleiri þátta. Verðbólga mælist nú 10,2% og undirliggjandi verðbólga er 7,2%. Verðbólguvæntingar til…Lesa meira

true

Trommusett, hestar og fleira smálegt

Fyrir nokkrum árum setti Sigurþór Kristjánsson, oftast kallaður Sissi, sér sjö metnaðarfull markmið. Eitt þeirra var að giftast kærustunni, Þórdísi Arnardóttur að loknum þrjátíu ára aðlögunartíma. Það varð úr, þau eru orðin hjón. Svo tóku þau nýverið tímamótaákvörðun um að kaupa Geirabakarí, þjóðþekktan áningarstað við Borgarfjarðarbrú. Lífið hefur verið litríkt og á köflum ótrúlegt. Blaðamaður…Lesa meira

true

Daníel Bergmann með sýningu

Laugardaginn 25. mars klukkan 17 opnar í Norska húsinu Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla ljósmyndasýningin Fuglar á Snæfellsnesi eftir Daníel Bergmann. Daníel Bergmann náttúruljósmyndari hefur lengi fylgst með fuglalífinu á Snæfellsnesi og myndað fuglana sem má finna á nesinu, bæði þá algengu og sjaldséðu. Á sýningunni verða myndir af nokkrum þessara fuglategunda ásamt ýmiss konar upplýsandi…Lesa meira

true

Fermingarbörn dönsuðu í sólarhring

Hópur fermingarbarna í Borgarfirði dansaði um helgina í heilan sólarhring í Reykholtskirkju. Um var að ræða dansmaraþon þar sem krakkarnir söfnuðu áheitum fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Með ágóðanum ætla fermingarbörnin að bæta aðgengi að drykkjarhæfu vatni. Verkefnið er endurtekið frá því í fyrra þegar fermingarbörn síðasta árs dönsuðu í heilan sólarhring til að safna áheitum fyrir…Lesa meira

true

Maður á mislitum sokkum í Sævangi

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir á sunnudaginn gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman. Leikstjóri er Skúli Gautason. Fullorðin kona sest upp í Skódann sinn eftir að hafa farið í búð til að kaupa í matinn. Þá situr eldri maður í framsætinu sem er orðinn kaldur og aumur, veit ekki hvar hann er eða hver hann…Lesa meira

true

Stefnt á að nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum verði opnað í lok árs 2025

Framkvæmdir við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum á Akranesi hófust með jarðsvegsskiptum og breytingum á lögnum haustið 2021 og annaðist Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar þann verkþátt. Sumarið 2022 hófu síðan Flotgólf Byggingaverktakar framkvæmdir við uppsteypu og frágang og er það verk enn í gangi. Íþróttahúsið samanstendur af fjölnota íþróttasal og hliðarbyggingu á tveimur hæðum fyrir ýmis fylgirými.…Lesa meira

true

Rífandi eftirspurn eftir athafnalóðum í Flóahverfi

Óhætt er að segja að mikil eftirspurn sé eftir byggingarlandi undir fjölbreytta atvinnustarfsemi í nýju Flóahverfi á Akranesi, en þar hefur nú verið úthlutað 22 athafnalóðum. Á síðustu tveimur vikum hafa bæjaryfirvöld nánast á færibandi dælt út tilkynningum þar sem sagt er frá undirritun samninga við fyrirtæki um lóðir. Í Skessuhorni í dag var m.a.…Lesa meira