
Stefnt á að nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum verði opnað í lok árs 2025
Framkvæmdir við nýja íþróttahúsið á Jaðarsbökkum á Akranesi hófust með jarðsvegsskiptum og breytingum á lögnum haustið 2021 og annaðist Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar þann verkþátt. Sumarið 2022 hófu síðan Flotgólf Byggingaverktakar framkvæmdir við uppsteypu og frágang og er það verk enn í gangi.