Fréttir

true

Framkvæmdir á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi

Í síðustu viku stóðu yfir töluverðar framkvæmdir á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi. Vegagerðin stendur fyrir verkinu sem snýr að því að bæta grjóti í hafnarbarðið og tryggja öryggi á svæðinu. Í frétt á vef Sveitarfélagsins Stykkishólms segir Magni Grétarsson deildarstjóri hjá Vegagerðinni að verkefnið sé umferðaröryggisaðgerð til að tryggja öryggi vegfarenda á leið í ferjuna Baldur.…Lesa meira

true

Tveir nýir starfsmenn ráðnir til SSV

Í síðustu viku voru tveir nýir starfsmenn ráðnir til starfa hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, en ráðningarferlið var unnið með Hagvangi. Ráðið var í starf atvinnuráðgjafa og verkefnisstjóra markaðsmála. Hrafnhildur Tryggvadóttir var ráðin í starf atvinnuráðgjafa, en tólf umsóknir bárust um starfið. Hrafnhildur hefur síðan 2015 starfað hjá Borgarbyggð á sviði umhverfis- og framkvæmdamála. Hún…Lesa meira

true

Emelía Ýr sigurvegari í stóru upplestrarkeppninni

Stóra upplestrarhátíð samstarfsskólanna á Vesturlandi var haldin í Heiðarskóla síðasta fimmtudag. Samstarfsskólarnir eru Auðarskóli í Dalabyggð, Grunnskóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn í Borgarnesi, Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit og Laugargerðisskóli í Eyja- og Miklaholtshreppi. Alls tóku níu nemendur þátt og óhætt er að fullyrða að vel hafi tekist til hjá öllum keppendum á lokahátíðinni. Verkefnið, Stóra upplestrarkeppnin, hefst ár…Lesa meira

true

Eldur kom upp í klæðningu í Kampi

Hratt var brugðist við þegar eldur kom upp í íbúðareiningu í gamla Kampus braggahverfinu á Miðsandi í Hvalfirði í morgun. Þar unnu iðnaðarmenn á vegum Hvals við endurbætur á húsinu sem notað er sem vistarverur starfsfólks hvalstöðvarinnar. Verið var að bræða tjörudúk á húsið utanvert þegar neisti hljóp í klæðningu. Áttuðu starfsmenn sig fljótt á…Lesa meira

true

MB setur upp söngleikinn Syngdu

Menntaskóli Borgarfjarðar setur nú upp söngleikinn Syngdu sem byggður er á teiknimyndinni Sing og fjallar um tilraun dýra til að bjarga leikhúsinu sínu með söngkeppni. Sýningin er samvinnuverkefni Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Leiklistarklúbbs MB og Menntaskóla Borgarfjarðar en nemendur MB og tíunda bekkjar Grunnskólans í Borgarnesi sóttu leiklistarnámskeið á vegum Leynileikhússins fyrir áramót til að vekja áhuga.…Lesa meira

true

Baldur siglir ekki í dag

Ferðir ferjunnar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar í dag verða felldar niður vegna veðurs. Þetta kemur fram á Twitter-síðu Vegagerðarinnar. Þá er óvíst hvort ferjan sigli á morgun en staðan verður skoðuð í fyrramálið.Lesa meira

true

Samkomulag um þróun Loftslagsgarðs á Akranesi – 51 hektari eyrnamerktur verkefninu

Akraneskaupstaður og íslenska fyrirtækið Transition Labs hafa samþykkt að kanna grundvöll þess að ráðist verði í uppbyggingu svokallaðs Loftslagsgarðs, athafnasvæðis með þyrpingu fyrirtækja í loftslagstengdri starfsemi, í sveitarfélaginu. Bærinn mun taka frá landsvæði fyrir Loftslagsgarðinn sem Transition Labs hefur einkarétt á að nýta til ákveðins tíma á meðan deiliskipulag svæðisins er útfært og möguleikar eins…Lesa meira

true

Regus opnar fjarvinnuaðstöðu í Stykkishólmi

Samningar hafa náðst um að Regus opni nýja fjarvinnuaðstöðu við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Húsnæðið hýsti áður starfsemi Búnaðarbankans og síðar Arion banka, en hefur síðastliðið ár verið heimili frumkvöðlasetursins Árnaseturs. Stefnt er að opnun aðstöðunnar í apríl. Það er fyrirtækið Sæfell sem er samstarfsaðili Regus en samningur um húsnæðið er til 15 ára. Regus…Lesa meira

true

Hefja kennslu í heyrnartækni næsta haust

Boðið verður upp á tækifæri til náms í heyrnartækni í fyrsta sinn hér á landi næsta haust, í samvinnu Heilbrigðisskóla Fjölbrautaskólans við Ármúla og SydDansk Erhvervsskole í Óðinsvéum. Mikil og vaxandi þörf er fyrir heyrnarfræðinga og sérhæft starfsfólk í heyrnartækni. Heilbrigðisráðuneytið fól því Landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu að skoða leiðir til að…Lesa meira

true

Stefnt er á að opna Búkollu að nýju í júní

Nytjamarkaðurinn Búkolla á Akranesi hefur verið lokaður frá því í maí á síðasta ári og hefur starfsemin legið í dvala síðan þá. Búkolla var til húsa á Vesturgötu 62 og var starfseminni lokað vegna slæmra loftgæða í húsinu. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að framkvæmdir á nýju húsnæði Búkollu, sem staðsett er á Smiðjuvöllum 9,…Lesa meira