
Vinnuaðstaða verður eins og hún gerist best í nýju fjarvinnuaðstöðunni.
Regus opnar fjarvinnuaðstöðu í Stykkishólmi
Samningar hafa náðst um að Regus opni nýja fjarvinnuaðstöðu við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Húsnæðið hýsti áður starfsemi Búnaðarbankans og síðar Arion banka, en hefur síðastliðið ár verið heimili frumkvöðlasetursins Árnaseturs. Stefnt er að opnun aðstöðunnar í apríl. Það er fyrirtækið Sæfell sem er samstarfsaðili Regus en samningur um húsnæðið er til 15 ára. Regus rekur nú þegar skrifstofusetur á höfuðborgarsvæðinu, á Ísafirði og í Borgarnesi. Fyrirtækið hyggst opna fjögur ný útibú á þessu ári; tvö á höfuðborgarsvæðinu, eitt á Siglufirði og fyrrnefnda aðstöðu í Stykkishólmi. Þá verða alls 13 skrifstofusetur í rekstri Regus hér á landi.