
Frá framkvæmdum við höfnina. Ljósm. stykkisholmur.is
Framkvæmdir á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi
Í síðustu viku stóðu yfir töluverðar framkvæmdir á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi. Vegagerðin stendur fyrir verkinu sem snýr að því að bæta grjóti í hafnarbarðið og tryggja öryggi á svæðinu.