
Loftmynd af Garðaflóa. Svæðið sem eyrnamerkt er Loftslagsgarði er hvítlitað.
Samkomulag um þróun Loftslagsgarðs á Akranesi – 51 hektari eyrnamerktur verkefninu
Akraneskaupstaður og íslenska fyrirtækið Transition Labs hafa samþykkt að kanna grundvöll þess að ráðist verði í uppbyggingu svokallaðs Loftslagsgarðs, athafnasvæðis með þyrpingu fyrirtækja í loftslagstengdri starfsemi, í sveitarfélaginu. Bærinn mun taka frá landsvæði fyrir Loftslagsgarðinn sem Transition Labs hefur einkarétt á að nýta til ákveðins tíma á meðan deiliskipulag svæðisins er útfært og möguleikar eins og öflugar orkutengingar eru kannaðir nánar.