
Neisti komst inn í klæðningu þegar unnið var við að klæða húsið með dúk. Ljósm. mm
Eldur kom upp í klæðningu í Kampi
Hratt var brugðist við þegar eldur kom upp í íbúðareiningu í gamla Kampus braggahverfinu á Miðsandi í Hvalfirði í morgun. Þar unnu iðnaðarmenn á vegum Hvals við endurbætur á húsinu sem notað er sem vistarverur starfsfólks hvalstöðvarinnar. Verið var að bræða tjörudúk á húsið utanvert þegar neisti hljóp í klæðningu. Áttuðu starfsmenn sig fljótt á málum og náðu að slökkva eldinn með slökkvitækjum og brunaslöngu áður en slökkvilið kom á staðinn, en allt tiltækt Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað á staðinn. Tjón varð minniháttar.
Kampusinn er hluti af gamla braggahverfinu sem herinn reisti á Miðsandi í seinna stríðinu. Hvalur eignaðist húsin 1947 og hefur haldið húsunum vel við alla tíð.

