Maður á mislitum sokkum í Sævangi

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir á sunnudaginn gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman. Leikstjóri er Skúli Gautason. Fullorðin kona sest upp í Skódann sinn eftir að hafa farið í búð til að kaupa í matinn. Þá situr eldri maður í framsætinu sem er orðinn kaldur og aumur, veit ekki hvar hann er eða hver hann er. Konan tekur hann með sér heim og hlúir að honum, en brátt taka málin að flækjast. Konan, sem er ekkja og ósköp einmana, finnst ágætt að hafa einhvern til að hugsa um – en má þetta? Má hirða mann sem maður finnur úti á götu og láta engan vita?

Maður á mislitum sokkum í Sævangi - Skessuhorn