Slys á gönguleiðinni að Glymi

Björgunarsveitir í Borgarfirði og Akranesi hafa verið ræstar út á hæsta forgangi til björgunaraðgerða við fossinn Glym í Hvalfirði.

Þar varð slys á ellefta tímanum í morgun þegar einstaklingur sem staddur var ofarlega á gönguleiðinni að fossinum féll niður. Sérstaklega er kallað eftir fólki til fjallabjörgunar og straumvatnsbjörgunar.

Glymur kemur úr Botnsá og er hæsti aðgengilegi foss landsins, 198 metrar að hæð.