
Trommusett, hestar og fleira smálegt
Fyrir nokkrum árum setti Sigurþór Kristjánsson, oftast kallaður Sissi, sér sjö metnaðarfull markmið. Eitt þeirra var að giftast kærustunni, Þórdísi Arnardóttur að loknum þrjátíu ára aðlögunartíma. Það varð úr, þau eru orðin hjón. Svo tóku þau nýverið tímamótaákvörðun um að kaupa Geirabakarí, þjóðþekktan áningarstað við Borgarfjarðarbrú. Lífið hefur verið litríkt og á köflum ótrúlegt. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti þau á fallegu heimili þeirra í Borgarnesi. Það var jafnframt fyrsti dagurinn þeirra sem eigendur Geirabakarís. Þegar að er komið er flutningabíll á hlaðinu og þau sameinast um að bera inn stóra flata pakka. Þeir reynast vera nýjar borðplötur í Stúdíó gott hljóð, sem Sissi rekur í bílskúrnum heima hjá þeim. Þar er alltaf eitthvað um að vera; fólk að koma í upptökur og Sissi að fullvinna hljóðrásir. Á fallegu hvítu píanói í holi hússins er setning sem Þórdís segir að höfð sé í heiðri í Miðgarðsfjölskyldunni: „Ekkert mál og tekur enga stund.“ Það á eftir að sýna sig hér á eftir að þetta eru viðeigandi einkunnarorð.