Búið er að úthluta 22 lóðum í Flóahverfi auk 51 hektara svæðis undir Loftslagsgarð. Myndin var tekin í garranum í dag og horft austur eftir svæðinu. Hús Veitna er fremst á mynd. Ljósm. mm.

Rífandi eftirspurn eftir athafnalóðum í Flóahverfi

Óhætt er að segja að mikil eftirspurn sé eftir byggingarlandi undir fjölbreytta atvinnustarfsemi í nýju Flóahverfi á Akranesi, en þar hefur nú verið úthlutað 22 athafnalóðum. Á síðustu tveimur vikum hafa bæjaryfirvöld nánast á færibandi dælt út tilkynningum þar sem sagt er frá undirritun samninga við fyrirtæki um lóðir. Í Skessuhorni í dag var m.a. sagt frá tveimur nýjustu vendingum í málinu. Samið hefur verið við íslenska fyrirtækið Transition Labs um að kanna grundvöll fyrir uppbyggingu á svokölluðum Loftslagsgarði sem verður athafnasvæði með þyrpingu ýmissa fyrirtækja í loftslagstengdri starfsemi. Fyrirtækið fær nú eyrnamerktan 51 hektara land fyrir Loftslagsgarð. Nú verður hafist handa við gerð deiliskipulags, hönnun, kannað með orkutengingar og fleira því tengt. Þetta einstaka verkefni gæti, samkvæmt heimildum Skessuhorns, orðið grunnur að mörg hundruð nýjum atvinnutækifærum í bæjarfélaginu.

Rífandi eftirspurn eftir athafnalóðum í Flóahverfi - Skessuhorn