
Blóðbankabíllinn verður á ráðhúsplaninu við Stillholt 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 21. mars frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

Blóðbankabíllinn verður á ráðhúsplaninu við Stillholt 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 21. mars frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

Niðurstöður liggja fyrir úr könnun Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna fyrir tímabilið maí til desember 2022. Tæplega þriðjungur svarenda voru Bandaríkjamenn og um einn af hverjum tíu Bretar. Þar á eftir komu Þjóðverjar (8%) og Frakkar (8%). Fólkið var spurt við brottför frá Keflavík eftir heimsókn hér á landi. Meðalaldur svarenda var í kringum 40 ár…Lesa meira

Meðfylgjandi mynd var tekin á föstudaginn en þá var áhöfn varðskipsins Freyju á æfingu skammt undan mynni Hvalfjarðar. Veður var stillt en kalt. Skipið lónaði ekki fjarri uppsjávarveiðiskipunum sem þessa dagana eru á síðustu dögum loðnuveiða. Í dag er Freyja hins vegar stödd út af Patreksfirði.Lesa meira

Skallagrímur og Selfoss mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Eftir um fimm mínútna leik var staðan 16:17 fyrir gestunum og allt í járnum. En þá skoruðu Skallarnir tíu stig í röð á tveggja mínútna kafla og þegar fyrsta leikhluta lauk voru heimamenn með tólf…Lesa meira

Kári tók á móti Ými í riðli 1 í B deild Lengjubikars karla í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Kári vann fyrstu tvo leikina í riðlinum á móti KV og ÍH stórt en tapaði síðan næstu tveimur leikjum gegn Reyni Sandgerði og Víkingi Ólafsvík. Ýmir var með fullt hús stiga fyrir leikinn eftir þrjá…Lesa meira

Dagana 23. til 25. mars næstkomandi verður Júlíana, hátíð sögu og bóka, haldin í tíunda skipti í Stykkishólmi og er yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni „Nýir Íslendingar: Áhrif þeirra í skrifum og listum.“ Setning hátíðarinnar er á fimmtudaginn í Stykkishólmskirkju og hefst klukkan 20. Þar flytja Hallgerður og rest úr Tónlistarskóla Stykkishólms nokkur lög, ávarp…Lesa meira

Eigendur þriggja smábáta tóku sig til í gær og ruddu ís úr höfninni í Ólafsvík. Þetta voru bátarnir Sverrir SH, Rán SH og Signý SH. Talsverðan ís hafði lagt í höfnina í þessu kuldakasti sem stendur nú yfir og þar af leiðinni lagði ís fljótt. Samhliða miklu frosti hefur sterkur norðan vindur verið ríkjandi og…Lesa meira

Teitur Björn Einarsson tekur í vor sæti Haraldar Benediktssonar á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi en kunngjört var í morgun að Haraldur hefði verið ráðinn í starf bæjarstjóra á Akranesi. Haraldur tekur við bæjarstjórastarfinu 1. maí næstkomandi og segir Teitur í samtali við Skessuhorn fljótlega skýrist hvenær hann taki sæti Haraldar. Teitur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins…Lesa meira

„Það er óhætt að segja að það sé búið að vera líf og fjör við höfnina hér á Akranesi í kringum loðnuvertíðina síðasta rúman hálfan mánuð og verða það að teljast gríðarlega jákvæð tíðindi,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness á FB síðu sína. Hann fór í dag á bryggjurúnt hvar verið var að landa…Lesa meira

Ýmsir viðburðir eru á dagskrá Vetrardaga á Akranesi um helgina en hátíðin hófst á miðvikudaginn með upphitun í Tónbergi með tónleikum Stórsveitar Íslands í samvinnu við FEBAN, við góðar undirtektir. Hátíðin var fyrst haldin árið 2016 og hefur undanfarin ár verið undir heitinu Írskir vetrardagar. Hátíðin var síðast haldin í fyrra en var frestað í…Lesa meira