Fréttir

true

Nýjar brýr verða til á Skógarstrandarvegi

Í árslok 2021 skrifuðu Vegagerðin og Borgarverk undir samning um endurbyggingu Snæfellsnesvegar á Skógarstrandarvegi á um 5,4 km kafla um Hörðudal. Var það með stærri útboðum í vegaframkvæmdum á Vesturlandi í langan tíma. Tilboð Borgarverks hljóðaði upp á 970 milljónir króna og var 12,6% yfir kostnaðaráætlun. Innifalið í verkinu er bygging tveggja brúa, á Skraumu…Lesa meira

true

Skíðaráð hefur unnið þrekvirki í uppbyggingu á skíðasvæði Snæfellsness

Nánast í þéttbýlinu í Grundarfirði liggur skíðasvæði Snæfellsness, brekkan byrjar ofan við bæinn og endar neðan við grunnskólann. Sögu svæðisins má rekja aftur um nokkra áratugi en t.d. hefur núverandi skíðalyfta staðið síðan 1984. Skíðasvæðið er einnig talið vera það lægsta í heiminum en það stendur 16 metrum yfir sjávarmáli þar sem það er lægst.…Lesa meira

true

Átti þátt í að framleiða nýjan tölvuleik

Skagamaðurinn Kristinn Bragi Garðarsson stundar meistaranám í margmiðlunartækni við Kaupmannahafnardeild Álaborgarháskóla. Í náminu hefur hann unnið að framleiðslu nýs tölvuleikjar sem kom út í gær, þriðjudag. ,,Temple of Starlight er einstakur og krefjandi leikur sem ég og nokkrir skólafélagar mínir höfum unnið hörðum höndum að í eitt og hálft ár. Leikurinn gerist í abstrakt heimi…Lesa meira

true

„Við náum lengra ef við tökum höndum saman“

Rut Ragnarsdóttir rekur hönnunarverslunina Útgerðina sem staðsett er í gamla Pakkhúsinu í Ólafsvík. Verslunina opnaði hún árið 2019, ásamt eiginmanni sínum Heimi Berg Vilhjálmssyni, og er þar lögð áhersla á íslenskar hönnunarvörur í bland við aðrar sérvaldar vörur. Þar er líka boðið upp á myndlistarsýningar, almenna viðburði og ýmsar tónlistaruppákomur. „Okkur þykir vænt um þetta…Lesa meira

true

Kviknaði í dekki á Vatnaleið

Ökumaður var á ferð á flutningabifreið með tengivagni rétt fyrir kvöldmat á mánudag í liðinni viku við Baulárvallavatn á Vatnaleið. Varð hann fyrir því óláni að það kviknaði í innra dekki og loftpúða hægra megin á vagninum. Ökumaður heyrði hvell en tók ekki eftir því strax að það logaði í dekkinu. Hann stöðvaði síðan bifreiðina…Lesa meira

true

Listfélag Akraness formlega stofnað annað kvöld

Á morgun, fimmtudaginn 26. janúar klukkan 20, verður Listfélag Akraness formlega stofnað í sal Brekkubæjarskóla á Akranesi. Þá verður haldinn kynningarfundur um félagið og nýir félagar boðnir velkomnir. Unnið hefur verið að stofnun félagsins frá því í haust. Skipuð var stjórn til að annast undirbúning að stofnun félagsins og hefur það nú verið gert og…Lesa meira

true

Glímdu við vatnsleysi

Vatnslaust hefur verið á nokkrum bæjum í Álftaneshreppi og Borgarhreppi seinustu daga. Ástæðan reyndist vera að skurður við Lambalæk (gamla Galtarholtshúsið) hafði stíflast og vatn runnið inn í kjallara. Við það fór rafmagn af og sló út segulrofa þannig að þrýstingur á kerfinu féll. Að sögn Ámunda Sigurðssonar, verkstjóra hjá Áhaldahúsi Borgarbyggðar, var í gær…Lesa meira

true

Teddi hlaut viðurkenningu í ljóðakeppni

Síðastliðinn laugardag var Ljóðstafur Jóns úr Vör veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi. Ljóðasamkeppnin er haldin ár hvert af Kópavogsbæ og er öllum frjálst að senda inn frumsamin íslensk ljóð undir dulnefni en alls bárust 230 ljóð í keppnina í ár. Verðlaunaskáldið fær silfurskreyttan göngustaf Jóns úr Vör til varðveislu í eitt ár…Lesa meira

true

Haraldur Árni ráðinn til ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Harald Árna Hróðmarsson sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla og teymisstjóra ellefu manna bolta í 2.-4. flokki karla og kvenna hjá félaginu. Í tilkynningu frá KFÍA segir að Haraldur Árni sé með KSÍ A þjálfaragráðu og UEFA Elite Youth A gráðu og hafi mikla reynslu sem þjálfari. Hann þjálfaði hjá Þrótti frá 2013-2018…Lesa meira

true

Árleg garðfuglatalning er um næstu helgi

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi að vetri. Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. „Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla,“ segir í leiðbeiningum frá Fuglavernd. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf…Lesa meira