Fréttir

true

Rakavarnaráætlun og Svansvottun til varnar myglu og raka

Raki og mygla í mannvirkjum hefur valdið gífurlegu tjóni eins og mörgum ætti að vera kunnugt um; bæði fjárhagslegu og heilsufarslegu. Það er því mikilvægt að bregðast hratt við og setja rakaforvarnir í forgang við byggingu húsnæðis. Í frétt Umhverfisstofnunar kemur fram að Svansvottaðar byggingar og endurbætur uppfylli kröfur um rakaforvarnir á hönnunar- og byggingartíma.…Lesa meira

true

Húsfyllir hjá Söngbræðrum

Af viðtökum að dæma höfðu margir beðið með óþreyju eftir því að karlakórinn Söngbræður stigi á stokk á ný eftir langt hlé vegna heimsfaraldurs. Boðað var til söngveislu af þjóðlegu gerðinni í félagsheimilinu Þinghamri í Stafholtstungum síðastliðinn laugardag. Auk söngatriða undir stjórn Viðars Guðmundssonar kórstjóra var matarveisla þar sem á borðum var saltað hrossakjöt og…Lesa meira

true

Afmælisblað í stóru upplagi 15. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar verða rétt 25 ár síðan Skessuhorn kom fyrst út. Blaðið sem verður gefið út miðvikudaginn 15. febrúar verður að hluta helgað afmælinu og sögu fyrirtækisins. Þá verða samkvæmt venju fréttir og viðtöl víðs vegar af Vesturlandi. Þetta tölublað verður prentað í sérstöku auka upplagi, en auk hefðbundinnar dreifingar til áskrifenda, verður því…Lesa meira

true

Ninja komst áfram í Idolinu

Fyrsti þátturinn í beinni útsendingu Idolsins fór fram í Idolhöllinni í Gufunesi á föstudagskvöldið og var sýndur á Stöð 2. Átta keppendur mættu til leiks en aðeins sjö keppendur komust áfram og var því einn keppandi sendur heim eftir kvöldið. Þema kvöldsins var „Þetta er ég“ og fluttu keppendur lög sem endurspegluðu tónlistarstíl þeirra í…Lesa meira

true

Indriði Áki semur við ÍA

Miðjumaðurinn Indriði Áki Þorláksson hefur gert samning við Knattspyrnufélag ÍA út tímabilið 2024. Indriði Áki er 27 ára gamall, alinn upp á Akranesi og spilaði með yngri flokkum félagsins upp í 3. flokk en færði sig árið 2012 yfir til Vals í 2. flokki. Hann hefur spilað víða á ferlinum í meistaraflokki; með Val, Leikni…Lesa meira

true

Vinna hafin við úttekt á stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa ráðið Þorstein Gunnlaugsson ráðgjafa til að gera úttekt á stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi. Í verkefninu felst að skoða sérstaklega hvar eru gloppur í fjarskiptum, bæði á þjóðvegum og inn til sveita, hvernig fjarskiptafélögin hyggjast leysa úr þessum vanda og hvernig stjórnvöld hyggjast koma að þessari uppbyggingu. Úttektin mun bæði ná…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Valdimar Ingi Brynjarsson

Það er ákveðin taktík að bjóða fólk velkomið Viðmælandi Skinkuhornsins þessa vikuna er Skagamaðurinn Valdimar Ingi Brynjarsson. Hann er mörgum kunnur en hann hefur síðustu 15 ár verið viðloðinn veitingastaðinn Gamla Kaupfélagið á Akranesi. Þar byrjaði hann 14 ára gamall að baka pizzur en var fljótur að taka að sér önnur verkefni innanhúss þegar þau…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður á ráðhússplaninu við Stillholt 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 17. janúar frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir hvattir til að mæta og gefa blóð.Lesa meira

true

Nýr hagvísir kominn út um Vesturland

Fyrir helgina fór Hagvísirinn „Búferlaflutningar á Vesturlandi“ á vefinn. Þar er m.a. kannaður uppruni nýrra íbúa og áfangastaður þeirra sem flytja brott, vægi flutningsjafnaðar og hreyfanleiki íbúanna. Skýrslan er eftir Vífil Karlsson hagfræðing. Í henni kemur m.a. fram að í langflestum sveitarfélögum á Vesturlandi hefur orðið breyting á búferlaflutningum. Íbúar af Vesturlandi fluttu síðastliðin ár…Lesa meira

true

Enn hefur leitin ekki borið árangur

Í gær var fjölmenni við leit að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni sem saknað hefur verið frá því laugardaginn 7. janúar. Auk björgunarsveitarfólks úr héraði hafa ýmsir fleiri lagt lið við þetta stóra leitarverkefni; björgunarsveitarfólk víða af landinu, sjálfboðaliðar, kvenfélagskonur og fyrirtæki sem gefið hafa matvæli. Þá hefur þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, sérsveitarmenn og lögreglumenn úr héraði…Lesa meira