Fréttir

true

Tónleikum í Vinaminni aflýst vegna veikinda

Tónleikunum “Söngvar og aríur um ástir, örlög og bús,” sem vera áttu í Vinaminni á Akranesi í kvöld klukkan 20 hefur verið frestað um ótilgreindan tíma vegna veikinda. Þar áttu að koma fram Lilja Guðmundsdóttir sópran, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari, en tónleikarnir voru á vegum Kalman listafélags. -fréttatilkynningLesa meira

true

Stuttmyndasýning í Óðali og samtal við sænskan leikstjóra

Nemendum í 8. til 10. bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi var á mánudaginn boðið á stuttmyndasýningu og vinnustofu með leikstjóranum Malin Ingrid Johansson. Í félagsmiðstöðinni Óðali var krökkunum boðið að að sjá sýningu á mynd Malinar sem heitir „Madden“ og ræða við leikstjórann. Sýningin var hluti af UngRIFF barnakvikmyndahátíðinni sem var sett í fyrsta skiptið…Lesa meira

true

Sandhverfa að veiðast við Snæfellsnes

Dragnótarbáturinn Sveinbjörn Jakobsson SH-10 frá Ólafsvík fékk fágæta sandhverfu í dragnótina út af Skarðsvík í gær. Guðbjörn Egilsson stýrimaður áætlaði að fiskurinn væri um fjögur kíló að þyngd. Er þetta í annað sinn á stuttum tíma sem þessi fágæta fiskitegund fæst í dragnótina á Breiðafirði, en fyrir nokkrum dögum fékk Matthías SH frá Rifi eina…Lesa meira

true

„Stuðningur er það sem skiptir mestu máli“

Körfuknattleikslið Snæfells endaði í öðru sæti á síðustu leiktíð í 2. deild karla og komst þar með upp í fyrstu deildina eftir nokkurt hlé. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Gunnlaugi Smárasyni sem er þjálfari liðsins eins og í fyrra og segir hann að undirbúningstímabilið hefði byrjað vikuna eftir verslunarmannahelgina. Erlendu leikmennirnir hefðu mætt í byrjun september…Lesa meira

true

„Er mjög bjartsýnn á tímabilið“

Körfuknattleikslið ÍA endaði í áttunda sæti í 1. deild karla á síðasta tímabili með 22 stig, þeir unnu ellefu leiki og töpuðu sextán. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Fannari Frey Helgasyni formanni körfuknattleiksdeildar ÍA í síðustu viku og segir Fannar að undirbúningstímabilið í ár hafi byrjað í byrjun júní á styrktarþjálfun og gengið alveg prýðilega. En…Lesa meira

true

Ljósmyndafélagið Vitinn hefur starfsemi að nýju eftir langt hlé

Síðastliðið þriðjudagskvöld hélt Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi, sinn fyrsta félagsfund í hálft fjórða ár, eða síðan fyrir Covid-19. Nú er hugur í félagsfólki að koma starfseminni að nýju í gang. Fundað var í Stúkuhúsinu á Safnasvæðinu í Görðum. Stefnt er að öðrum félagsfundi fljótlega og aðalfundi félagsins fyrir jól. Vitinn hafði um árabil haft…Lesa meira

true

Ætlum að reyna að skemmta fólki í vetur

Skallagrímur endaði í fjórða sæti í fyrstu deild karla í körfuknattleik á síðasta tímabili og keppti síðan í fimm leikja einvígi við lið Hamars um sæti í Subway deildinni. Eftir mikla baráttu unnu Hamarsmenn einvígið í úrslitaleik og komust þar með upp í efstu deild á kostnað Skallagríms. Atli Aðalsteinsson er þjálfari liðsins ásamt Hafþóri…Lesa meira

true

Gömul og falleg hús sem fanga augað

Blaðamaður Skessuhorns skellti sér út í góða veðrið á dögunum og keyrði um götur bæjarins á Neðri Skaganum á Akranesi. Þar er að finna mörg gömul hús eins og gefur að skilja og sum þeirra líta mjög vel út á meðan öðrum veitti ekki af smá andlitslyftingu. Þar sem blaðamaður var í góðu skapi þennan…Lesa meira

true

Dregið hefur verið í VÍS bikarkeppni karla og kvenna

Dregið var í 32ja lið úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna í Laugardalnum í dag. VÍS bikar úrslitin sjálf verða leikin dagana 19.-24. mars 2024 þar sem karlarnir leika undanúrslit þann 19. mars, konurnar 20. mars og úrslitaleikirnir sjálfir verða 23. mars. Dregið verður í 16 liða úrslit í karlaflokki kl. 14:00 miðvikudaginn 25. október.…Lesa meira

true

Slökkvilið í Borgarnesi í eina öld

Laugardaginn 14. október nk. verður haldið upp á að rétt öld verður þá frá því fyrst var ákveðið að kaupa búnað til slökkvistarfa í Borgarnesi, undanfari þess að slökkvilið var stofnað í Borgarneshreppi eins og sveitarfélagið hét þá. Boðið verður til samkomu í Hjálmakletti þar sem tímamótanna verður minnst. Bjarni Kristinn Þorsteinsson varaslökkviliðsstjóri og fyrrum…Lesa meira