Það hefur mikið verið nostrað við þetta glæsilega hús á Skagabraut sem ber heitið Varmidalur.

Gömul og falleg hús sem fanga augað

Blaðamaður Skessuhorns skellti sér út í góða veðrið á dögunum og keyrði um götur bæjarins á Neðri Skaganum á Akranesi. Þar er að finna mörg gömul hús eins og gefur að skilja og sum þeirra líta mjög vel út á meðan öðrum veitti ekki af smá andlitslyftingu. Þar sem blaðamaður var í góðu skapi þennan dag ákvað hann að taka myndir af húsum sem vöktu athygli hans og voru ólík. Sum voru falleg og stílhrein að hans mati, önnur flott á litinn, sum með sál og bara alls konar. Fólk er með misjafnan smekk sem betur fer og það á kannski alveg við í þessu tilviki en eftirfarandi hús fönguðu alla vega augu blaðamanns í blíðunni á Neðri Skaganum þennan daginn.

Gömul og falleg hús sem fanga augað - Skessuhorn