
Bjarni Kristinn Þorsteinsson. Ljósm. mm
Slökkvilið í Borgarnesi í eina öld
Laugardaginn 14. október nk. verður haldið upp á að rétt öld verður þá frá því fyrst var ákveðið að kaupa búnað til slökkvistarfa í Borgarnesi, undanfari þess að slökkvilið var stofnað í Borgarneshreppi eins og sveitarfélagið hét þá. Boðið verður til samkomu í Hjálmakletti þar sem tímamótanna verður minnst. Bjarni Kristinn Þorsteinsson varaslökkviliðsstjóri og fyrrum slökkvistjóri í Slökkviliði Borgarbyggðar hefur gert samantekt um fyrstu árin í sögu slökkviliðs í þorpinu og birtist hún í heild sinni á vef sveitarfélagsins.