Fréttir

true

Hreystitæki komin upp á þremur stöðum í Borgarbyggð

Starfsmenn áhaldahúss Borgarbyggðar hafa lokið við uppsetningu á hreystitækjunum á þremur stöðum. Þau eru við göngustíg aftan við Kjartansgötu í Borgarnesi, á Hvanneyri við göngustíg í námunda við ærslabelg og neðan við Bjössaróli í Borgarnesi. Á tækjunum eru leiðbeiningar hvernig megi nota þau. Á upplýsingasíðu Borgarbyggðar eru íbúar hvattir til að fá sér göngutúr og…Lesa meira

true

Þrjú ný björgunarskip í flotann

Endurnýjun björgunarskipa og báta Slysavarnafélagsins Landsbjargar heldur áfram og nú hafa tveir nýir Rafnarsbátar bæst í flota félagsins. Annar hjá Björgunarsveitinni Garðari á Húsavík og hinn hjá Björgunarsveitinni Sæbjörgu á Flateyri. Nýju bátarnir eru af gerðinni Rafnar 1100 og ná allt að 40 hnúta ganghraða sem styttir viðbragðstímann all verulega og eykur öryggi sjófarenda til…Lesa meira

true

Fjarlægja ónýta bíla

Á vegum Snæfellsbæjar hefur að undanförnu verið unnið við að fjarlægja bíla sem ekki eru á númerum. Fyrirtækið Bílaaðstoð og flutningar hefur aðstoðað við að taka bílana og koma þeim á endurvinnslustöð. Hér má sjá þrjá bíla sem voru fjarlægðir í Rifi á miðvikudaginn á flutningabíl frá Bílaaðstoð og flutningum sem staðsett er í Ólafsvík.Lesa meira

true

Ingibjörg Hargrave hélt upp á 80 ára afmælið

Borgnesingar og nærsveitungar fjölmenntu í Hjálmaklett síðastliðinn þriðjudag þegar Ingibjörg Hargrave hélt upp á 80 ára afmæli sitt. Veislan var lífleg að hætti afmælisbarnsins og veitingar rausnarlegar. Ingibjörg fór á kostum í afmælisræðu sinni þar sem hún rifjaði upp sögu Egilsgötunnar, hvar hún hefur búið alla sína tíð. Óhætt er að segja að allir gestir…Lesa meira

true

Birna Rún og Kristófer Áki fyrirmyndar leikmenn ÍA

Í gær fór fram lokahóf yngri flokka hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Fyrirmyndar leikmenn yngri flokka voru valin þau Birna Rún Þórólfsdóttir og Kristófer Áki Hlinason. Kristófer fékk Kiddabikarinn og Birna fékk TM-bikarinn. „Við óskum þessum hæfileikaríku leikmönnum til hamingju,“ segir í tilkynningu frá KFÍA.Lesa meira

true

Ugluklettur tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna

Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi er tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna 2023 fyrir þróun lýðræðislegs og skapandi leikskólastarfs. Verðlaun verða afhent í nóvember. Í tilnefningu segir að starf leikskólans byggi á skólanámskrá sem unnin var af starfsfólki, börnum og foreldrum á lýðræðislegan hátt. „Markvisst er unnið að því að virkja þessa aðila í daglegu starfi og byggt…Lesa meira

true

Sirkusþema og ljósmyndakeppni í Hvalfjarðarsveit

Úrslit liggja fyrir í ljósmyndasamkeppni og skreytingakeppni Hvalfjarðardaga 2023. Á upplýsingasíðu sveitarfélagsins kemur fram að þemað í ljósmyndakeppninni var „Sirkus í Hvalfjarðarsveit“. Menningar- og markaðsnefnd var sammála um að mynd sem Eyrún Jóna Reynisdóttir tók af dóttur sinni, Valeyju Rún Birkisdóttur, bæri af í ljósmyndasamkeppninni. Fékk hún að launum gjafakörfu sem Stjörnugrís lagði til keppninnar.…Lesa meira

true

Morgunfundi um Sundabraut streymt í fyrramálið

Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi þar sem Sundabraut verður til umfjöllunar föstudaginn 6. október kl. 09:00 – 10:15. Fundurinn fer fram í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ og verður einnig í streymi. Þá er minnt á að sambærilegur fundur verður haldinn í Tónbergi á Akranesi miðvikudagskvöldið 11. október klukkan 19:30 (sjá nánar í auglýsingu í…Lesa meira

true

Brekkubæjarskóli tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna

Íslensku menntaverðlaunin eru veitt ár hvert fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk þess sem sérstök hvatningarverðlaun eru veitt. Tilnefningar eru sendar fyrir 1. júní en verðlaunin verða afhent í nóvember. Meðal þeirra skóla sem hlutu tilnefningar að þessu sinni er Brekkubæjarskóli á Akranesi. Skólinn fær tilnefningu í flokki framúrskarandi skólastarfs…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við Garðabraut 1 á Akranesi

Eins og sést á meðfylgjandi mynd er nú langt komið að grafa fyrir bílakjallara nýs fjölbýlishúss við Garðabraut 1 á Akranesi og byrjað að aka möl í botninn. Húsið verður stærsta fjölbýlishúsið á Akranesi, með um 50 íbúðum. Eftir er að stækka holuna til austurs en áður þarf að færa skólprör sem þar eru fyrir…Lesa meira