Holan er nú nánast fullgrafin, en á eftir að stækka í austur. Ljósm. mm

Framkvæmdir hafnar við Garðabraut 1 á Akranesi

Eins og sést á meðfylgjandi mynd er nú langt komið að grafa fyrir bílakjallara nýs fjölbýlishúss við Garðabraut 1 á Akranesi og byrjað að aka möl í botninn. Húsið verður stærsta fjölbýlishúsið á Akranesi, með um 50 íbúðum. Eftir er að stækka holuna til austurs en áður þarf að færa skólprör sem þar eru fyrir í lóðinni. Að sögn Baldurs Ólafs Kjartanssonar staðarstjóra hjá Bestlu byggingafélagi eru framkvæmdir nú að fara á fullt við bygginguna. Stór bílakjallari verður í kjallara hússins sem rúma á einn bíl fyrir hverja íbúð í húsinu. Bílakjallarinn verður allur undir yfirborðinu og að hluta til grasi lagður eftir að byggingin verður risin. Efri hæðir hússins ganga því ekki eins langt út að nærliggjandi götum (sjá meðfylgjandi útlitsteikningu hér að neðan). Baldur segir að áætluð verklok við húsið séu haustið 2025 sem þýðir að byggingartíminn verður um tvö ár. Það er sambærilegur tími og það tók fyrirtækið að byggja fjölbýlishúsin við Þjóðbraut 3 og 5. Þau hús voru staðsteypt en Garðabraut 1 verður reist úr forsteyptum einingum frá Smellinn.

Framkvæmdir hafnar við Garðabraut 1 á Akranesi - Skessuhorn