
Ingibjörg Hargrave ásamt Guðjóni Árnasyni eiginmanni sínum og börnum þeirra þremur. Ljósm. sþ.
Ingibjörg Hargrave hélt upp á 80 ára afmælið
Borgnesingar og nærsveitungar fjölmenntu í Hjálmaklett síðastliðinn þriðjudag þegar Ingibjörg Hargrave hélt upp á 80 ára afmæli sitt. Veislan var lífleg að hætti afmælisbarnsins og veitingar rausnarlegar. Ingibjörg fór á kostum í afmælisræðu sinni þar sem hún rifjaði upp sögu Egilsgötunnar, hvar hún hefur búið alla sína tíð. Óhætt er að segja að allir gestir gengu með bros á vör úr Hjálmakletti að veislu lokinni.