
Tónleikunum “Söngvar og aríur um ástir, örlög og bús,” sem vera áttu í Vinaminni á Akranesi í kvöld klukkan 20 hefur verið frestað um ótilgreindan tíma vegna veikinda. Þar áttu að koma fram Lilja Guðmundsdóttir sópran, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari, en tónleikarnir voru á vegum Kalman listafélags. -fréttatilkynningLesa meira








