
Malin Ingrid Johansson ræðir við nemendur á unglingastigi GB í Óðali.
Stuttmyndasýning í Óðali og samtal við sænskan leikstjóra
Nemendum í 8. til 10. bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi var á mánudaginn boðið á stuttmyndasýningu og vinnustofu með leikstjóranum Malin Ingrid Johansson. Í félagsmiðstöðinni Óðali var krökkunum boðið að að sjá sýningu á mynd Malinar sem heitir „Madden“ og ræða við leikstjórann. Sýningin var hluti af UngRIFF barnakvikmyndahátíðinni sem var sett í fyrsta skiptið í síðustu viku. Hátíðin er hluti af RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, sem nú fagnar tuttugu ára afmæli.