
„Er mjög bjartsýnn á tímabilið“
Körfuknattleikslið ÍA endaði í áttunda sæti í 1. deild karla á síðasta tímabili með 22 stig, þeir unnu ellefu leiki og töpuðu sextán. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Fannari Frey Helgasyni formanni körfuknattleiksdeildar ÍA í síðustu viku og segir Fannar að undirbúningstímabilið í ár hafi byrjað í byrjun júní á styrktarþjálfun og gengið alveg prýðilega. En hefur leikmannahópurinn breyst mikið frá síðasta vetri?