Sigurvin við bryggju á Siglufirði, bátur sömu gerðar og nú eru á Flateyri, Húsavík, Vestmannaeyjum og á morgun einnig í Reykjavík. Ljósm. mm

Þrjú ný björgunarskip í flotann

Endurnýjun björgunarskipa og báta Slysavarnafélagsins Landsbjargar heldur áfram og nú hafa tveir nýir Rafnarsbátar bæst í flota félagsins. Annar hjá Björgunarsveitinni Garðari á Húsavík og hinn hjá Björgunarsveitinni Sæbjörgu á Flateyri. Nýju bátarnir eru af gerðinni Rafnar 1100 og ná allt að 40 hnúta ganghraða sem styttir viðbragðstímann all verulega og eykur öryggi sjófarenda til muna. Það voru hátíðlegar stundir þegar bátarnir voru afhentir í heimahöfnum sveitanna.

Þrjú ný björgunarskip í flotann - Skessuhorn