Verðlaunamyndina tók Eyrún Jóna Reynisdóttir af dóttur sinni Valeyju Rún.

Sirkusþema og ljósmyndakeppni í Hvalfjarðarsveit

Úrslit liggja fyrir í ljósmyndasamkeppni og skreytingakeppni Hvalfjarðardaga 2023. Á upplýsingasíðu sveitarfélagsins kemur fram að þemað í ljósmyndakeppninni var „Sirkus í Hvalfjarðarsveit“. Menningar- og markaðsnefnd var sammála um að mynd sem Eyrún Jóna Reynisdóttir tók af dóttur sinni, Valeyju Rún Birkisdóttur, bæri af í ljósmyndasamkeppninni. Fékk hún að launum gjafakörfu sem Stjörnugrís lagði til keppninnar.

Sirkusþema og ljósmyndakeppni í Hvalfjarðarsveit - Skessuhorn