Fréttir

true

Stefnt verður að byggingu nýs fangelsis á Litla-Hrauni

Dómsmálaráðherra og forstjóri Fangelsismálastofnunar héldu fyrr í vikunni blaðamannafund á Litla Hrauni þar sem kynntar voru stórtækar umbætur í fangelsismálum, með uppbyggingu nýs fangelsis, fjölgun rýma á Sogni og endurskoðun fullnustulaga. „Ítarleg skoðun og greining á aðstöðu á Litla-Hrauni er að baki og er niðurstaðan sú að nauðsynlegt er að ráðast í byggingu nýs fangelsis,…Lesa meira

true

Stefna á opinn íbúafund um áhrif lokunar íþróttahússins

„Bæjaryfirvöld munu á næstunni vinna að nákvæmri tímalínu, hönnun og útboði í tengslum við endurbæturnar á íþróttahúsinu en leitast verður við að stytta verktímann eins og kostur er,“ segir Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi í samtali við Skessuhorn, aðspurður um þá röskun sem ný skýrsla um slæm loftgæði í Íþróttahúsinu við Vesturgötu mun fela í…Lesa meira

true

„Sennilega skaðaði það mig ekki að vera bundinn við snúrustaurinn“

Árni Sigmundsson fyrrum lögreglumaður og deildarstjóri í Lögregluskóla ríkisins Fyrr í þessum mánuði lét Árni Sigmundsson af störfum hjá embætti Lögreglunnar á Vesturlandi og lauk þar með 37 ára störfum nær óslitið við löggæslu og fræðslumál lögreglunnar. Síðustu starfsárin hefur hann, í félagi við annan, sinnt eftirliti á þjóðvegum á vesturhluta landsins. Stærstan hluta starfsævinnar…Lesa meira

true

„Vonandi getum við tekið næsta skref“

Rætt við Brynjar Kristmundsson um tímabilið í sumar Víkingur Ólafsvík varð í fimmta sæti í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar með 38 stig, vann ellefu leiki, gerði fimm jafntefli og tapaði sex leikjum. Liðið var á sínu öðru ári í 2. deild en lék í fyrsta skipti í henni í fyrra síðan árið…Lesa meira

true

Mæðgur á vaktinni

Síðastliðið mánudagskvöld fór starfsfólk Sbarro á Akranesi í borgarferð, keilu og skemmtun í Egilshöllinni. Til stóð að afleysingafólk kæmi úr Reykjavík til að leysa vaktina af, en einhver vanhöld urðu á því. Verslunarstjórinn Aðalbjörg Alla Sigurðardóttir ákvað því að taka sjálf vaktina og fékk dóttur sína Ingu Birnu og dóttur hennar Hafrúnu Öllu til að…Lesa meira

true

Nemendur frá FVA fóru á ungmennaráðstefnu á Reykjum

Sex nemendur fóru sem fulltrúar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Reykjum í Hrútafirði um liðna helgi á vegum UMFÍ. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Að jörðu skaltu aftur verða,“ sem vísar til umhverfis- og loftlagsmála en markmið ráðstefnunnar var m.a. að efla umhverfisvitund ungs fólks. Ísak Emil Sveinsson…Lesa meira

true

Enn er mikið um hraðakstur í umdæminu

Fimm minniháttar umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, öll án teljandi meiðsla á fólki. Einn ók út af Útnesvegi á Snæfellsnesi og var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús en ökumaður taldi sjálfur að hann hefði sofnað við aksturinn. 43 ökumenn eru grunaðir um of hraðan akstur í vikunni, þar af voru…Lesa meira

true

„Vonum að litlu skrefin verði stærri á næstu árum“

Rætt við Björn Sólmar Valgeirsson um tímabilið í sumar Skallagrímur úr Borgarnesi lauk leik í áttunda sæti í fjórðu deild karla í knattspyrnu í sumar með 19 stig, vann sex leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði ellefu. Í fyrsta skipti í sögu Íslandsmótsins var fjórða deildin, fimmta efsta deild, tíu liða deild og fékk Skallagrímur…Lesa meira

true

Kynningarfundir fyrirhugaðir vegna Sundabrautar

Búið er að ákveða þrjá kynningarfundi á vegum Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar nú í byrjun október um matsáætlun vegna umhverfisáhrifa Sundabrautar og fyrirhugaðar aðalskipulagsbreytingar. Fundirnir verða haldnir í Klébergsskóla á Kjalarnesi þriðjudaginn 3. október kl. 18:00-19:30, Langholtsskóla miðvikudaginn 4. október kl. 17:30-19:00 og Rimaskóla fimmtudaginn 5. október kl. 17:30-19:00. Morgunfundur verður haldinn föstudaginn 6. október kl.…Lesa meira

true

Niðurrif hafið á Dalbraut 10

Í morgun hófst niðurrif á húsinu við Dalbraut 10 á Akranesi sem var hús Fjöliðjunnar til margra ára. Það er verktakafyrirtækið Urð og grjót ehf. sem er með umsjón með verkinu. Þetta er þriðja húsið af fjórum í bæjarfélaginu sem verður rifið niður og fjarlægt en fyrst í röðinni var Suðurgata 124 og síðan Suðurgata…Lesa meira