Páll Winkel, Guðrún Hafsteinsdóttir og Halldór Valur Pálsson að loknum blaðamannafundi. Ljósm. Stjórnarráðið

Stefnt verður að byggingu nýs fangelsis á Litla-Hrauni

Dómsmálaráðherra og forstjóri Fangelsismálastofnunar héldu fyrr í vikunni blaðamannafund á Litla Hrauni þar sem kynntar voru stórtækar umbætur í fangelsismálum, með uppbyggingu nýs fangelsis, fjölgun rýma á Sogni og endurskoðun fullnustulaga. „Ítarleg skoðun og greining á aðstöðu á Litla-Hrauni er að baki og er niðurstaðan sú að nauðsynlegt er að ráðast í byggingu nýs fangelsis, sem koma á í staðinn fyrir þá aðstöðu sem nú er á Litla-Hrauni. Hafinn verður undirbúningur að þeirri framkvæmd strax,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra. Lauslega er áætlað að bygging nýs fangelsins á Litla-Hrauni kosti ríkissjóð um sjö milljarða króna. Við uppbyggingu nýs fangelsis verður byggt á nútímaþekkingu á sviði betrunar og öryggismála, með hagsmuni fanga, starfsmanna og fjölskyldna fanga í huga. Mikil áhersla verður lögð á bætt öryggi, ekki síst fanga og starfsfólks fangelsa en jafnframt á bættan aðbúnað heimsóknargesta, þar sem gætt verður sérstaklega að þörfum barna.

Stefnt verður að byggingu nýs fangelsis á Litla-Hrauni - Skessuhorn