
Enn er mikið um hraðakstur í umdæminu
Fimm minniháttar umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, öll án teljandi meiðsla á fólki. Einn ók út af Útnesvegi á Snæfellsnesi og var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús en ökumaður taldi sjálfur að hann hefði sofnað við aksturinn.