Þakið á húsinu við Dalbraut að hverfa. Ljósm. vaks

Niðurrif hafið á Dalbraut 10

Í morgun hófst niðurrif á húsinu við Dalbraut 10 á Akranesi sem var hús Fjöliðjunnar til margra ára. Það er verktakafyrirtækið Urð og grjót ehf. sem er með umsjón með verkinu. Þetta er þriðja húsið af fjórum í bæjarfélaginu sem verður rifið niður og fjarlægt en fyrst í röðinni var Suðurgata 124 og síðan Suðurgata 108 þar sem m.a. AA-samtökin og Ljósmyndaklúbburinn Vitinn voru til húsa þar til fyrir skemmstu.

Niðurrif hafið á Dalbraut 10 - Skessuhorn