Frá ungmennaráðstefnunni á Reykjum um síðustu helgi. Ljósm. umfi.is.

Nemendur frá FVA fóru á ungmennaráðstefnu á Reykjum

Sex nemendur fóru sem fulltrúar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Reykjum í Hrútafirði um liðna helgi á vegum UMFÍ. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Að jörðu skaltu aftur verða,“ sem vísar til umhverfis- og loftlagsmála en markmið ráðstefnunnar var m.a. að efla umhverfisvitund ungs fólks. Ísak Emil Sveinsson er einn þeirra nemenda sem fór fyrir hönd FVA á ungmennaráðstefnuna en hann er virkur meðlimur í umhverfishópi FVA. Hann gaf sig á tal við blaðamann Skessuhorns og sagði nánar frá ráðstefnunni.

Nemendur frá FVA fóru á ungmennaráðstefnu á Reykjum - Skessuhorn